Vaxtaverkir vegna umfangs

Ýmsir vaxtaverkir hafa komið upp samhliða aðlögun þjóðarbúsins að auknu umfangi ferðaþjónustu. Ferðaþjónsta veldur þrýstingi á innviði og samfélag og náttúru. Bent er á að æskileg sé stefnumótun þvert á ráðuneyti með aðkomu hagsmunaaðila til að stuðla að sjálfbærni.

Þetta er eitt af mörgu sem fram kemur í nýrri skýrslu Efnahags- og framfarastofnunar Evrópu (OECD) um Ísland.

Skýrslan leggur til að núverandi skattaívilnanir á ferðaþjónustu verði afnumdar með því að færa skattheimtuna í almennt þrep virðisaukaskattas.

Takmarka mætti fjölda gesta á viðkvæmum stöðum og stýra má flæði fólks með þjónustu- eða notendagjöldum og minnka þannig álag á umhverfið.

Þá er í skýrslunni mælt með því að nota kostnaðar- og ábatagreiningu við mat fjárfestingakosta þar sem tekið er tillit til samfélagssjónarmiða og umhverfissjónarmiða.

Tryggja þarf samræmi í stefnumótun í samgöngumálum og ferðaþjónustu.

Heimildir HRBR segja að íslenskir embættismenn og sérfræðingar hafa unnið með starfsmönnum OECD við gerð skýrslunnar og því eigi ekki að koma á óvart að skattaáform ríkisstjórnarinnar og önnur áform fái hljómgrunn hjá höfundum hennar.

rtá

Nánar www.stjornarrad.is