Vaxtaskilyrði og matvælaverð

Á kosningafundi Viðreisnar í gær undir yfirskriftinni Sýnum spilin kynntu Þorsteinn Víglundsson og Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir og Benedikt Jóhannesson stefnu Viðreisnar.

Var ítrekað á fundinum að Viðreisn hyggst standa við þær kerfisbreytingar sem Viðreisn var stofnu um að hrinda í framkvæmd. Morgunblaðið segir frá þessu í frétt í gær.  

Á fundinum var kynnt reiknivél Viðreisnar þar sem fólk getur reiknað kostnað þann sem fylgir krónunni á vexti og matvælaverð. 

Á fundinum var skorða á önnur framboð að að kynna mótaðar tillögur um hvernig þessi framboð hyggjast fjármagna útgjaldaloforð sín.

Mestu fé segir Viðreisn yrði varið í heilbrigðismál og velferðarmál komist flokkurinn í ríkisstjórn.  

Nýsamþykkt fjármálaáætlun Viðreisnar er lögð til grundvallar útgjaldaloforðum Viðreisnar um alls 11,5 milljarða á ársgrundvelli.

Skattar yrðu ekki hækkaðir.

Og tryggingagjald yrði lækkað í áföngum kæmist Viðreisn í ríksstjórn. Skattleysismörk yrðu svo 192 þúsund krónur.

[email protected]