Í markaðspunktum Greiningardeildar Arion banka er skrifað um vaxtalækkun Seðlabanka Íslands (SÍ) í gær. Peningastefnunefnd SÍ ákvað í gær að lækka vexti um 0,25%. Því standa meginvextir SÍ - vextir á sjö daga bundnum innlánum - í 4,5%.
Ákvörðun SÍ er í góðum takti við væntingar höfunda Markaðspunkta Arion banka en þeir höfðu spáð vaxtalækkun. Einkum vegna nokkurrar gengistyrkingar krónunnar á milli vaxtaákvarðanafunda SÍ.
Gengi króunnnar - sem fram að þessu hefur verið rauði þráðurinn í yfirslýsingum SÍ - fékk þó minna vægi en oft áður á meðan raunvextir fengu veigameira hlutverk.
rtá
Nánar www.arionbanki.is