Vaxtakjör fjarri öllu lagi

Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður Samtaka iðnaðarins sagði á Iðnþingi í dag að það vaxtaumhverfi sem íslensk fyrirtæki byggju við væru ólíðandi: "Vaxtakjör hér á landi eru víðs fjarri því sem þekkist í löndunum í kringum okkur," sagði Guðrún á þinginu og benti á að það væri ójafn leikur að bera Ísland saman við helstu samkeppnislöndin í þessum efnum. Á þessun yrðu stjórnvöld og viðskiptabankarnir að taka. Á meðan vaxtakjörin væru svona léleg yrði fjárfesting hér á landi í lágmarki, þar á meðal erlend fjárfesting sem hefði verið svo að segja engin á þeim rösku sex árum sem liðin væru liðin frá hruni. Fyrir vikið væri stórhætta á að Ísland dragist aftur úr öðurm þjóðum að lífsgæðum.