Vaxtaákvörðun hinn 17.5.2017

Hagvöxtur síðasta árs var heilbrigður og ber ekki merki um verulega þenslu í hagkerfinu. Rökin fyrir háu vaxtastigi er ekki að finna í hagvaxtartölum. Verðbólga síðastliðna tólf mánuði er 1,9% en sé horft framhjá áhrifum húsnæðisliðar þá mælist 1,8% verðhjöðnun.

Um þetta er fjallað i frétt SA-Samtaka atvinnulífsins.

Sé stuðst við þann mælikvarða hefur verið viðvarandi verðhjöðnun í tíu mánuði. Í þrjátíu og níu mánuði hefur verðbólga mælst undir verðbólgumarkmiði Seðlabanka Íslands (SÍ). Á sama tíma virðist meginvaxtastig SÍ hins vegar óhagganlegt. 

Vaxtaákvarðanir síðustu ára hafa byggt á þeirri forsendu að verðbólga verði meiri en raunin varð á. Íslendingar eru í undarlegri stöðu. Uppgangur í hagkerfinu er mikill og þjóðhagslegur sparnaður einnig ólíkt því sem áður hefur verið á uppgangstímum. Verðlag er stöðugt en á sama tíma eru íslenskir raunvextir meðal þeirra hæstu í heimi.

Mikill vaxtamunur við útlönd skapar vanda sem reynt hefur verið að girða fyrir með innflæðishöftum en þó á hann enn sinn þátt í styrkingu krónunnar. Við áttum okkur öll á hættunni af ofrisi krónunnar og liggur fyrir að útflutningsgreinarnar eru margar komnar að fótum fram.

Svikalogn er að skapast í hagkerfinu í skjóli hávaxtastefnu SÍ.

Það er tími til kominnn að hliðaráhrif þess að keyra áfram sömu stefnu verði rædd á vaxtaákvörðunarfundum peningastefnunefndar SÍ.

Sterk rök hníga að lækkun vaxta.

rtá

Nánar www.sa.is