Vaxtaákvörðun á morgun

Vaxtaákvörðun peningstefnunefndar verður kynnt á morgun auk þess sem ritið Peningamál verður birt.

Jafnframt fer fram kynning á ákvörðun peningastefnunefndar og efni ritsins í sérstakri vefútsendingu sem hefst klukkan 10:00 í fyrramálið.

Það verða Már Guðmundsson seðlabankastjóri og formaður peningastefnunefndar og Þórarinn G. Pétursson framkvæmdastjóri hagfræði og peningastefnu í Seðlabankanum og meðlimur í peningastefnunefnd sem kynna ákvörðun peningastefnunefndar og efni ritsins Peningamál.

Ákvörðunin sjálf verður birt með frétt klukkan 08:35 í fyrramálið og ritið Peningamál verður síðan birt á vefnum klukka 09;00.

rtá

Nánar www.sedlabanki.is