Vaxandi ókyrrðar gætir í samfélaginu

Þeirrar óþreyju og ókyrrðar sem gætt hefur í samfélaginu síðustu daga - og birst hefur m.a. í kjaradeilum - sér nú einnig stað meðal alls almennings sem efnir til hverrar undirskiftasöfnunarinnar af annarri um virkara lýðræði, siðbót og launajöfnuð.


Fréttaskýrendur á Íslandi hafa rakið harkalegar deilur á vinnumarkaði síðustu vikna til uppsafnaðrar óþreyju í samfélaginu, en þar horfi margir til þess að vaxandi launaójöfnuðar sé aftur farið að gæta eftir áfall bankahrunsins - og mörg stórfyrirtæki og stjórnir þeirra fari þar sínu fram án nokkurs tillits til aðstæðna á meðal alls almennings. Þá bætist við erfið staða ungs fólks á húnsæðismarkaði, bág kjör breiðs hóps eldra fólks og ótrygg staða sjúklinga sem hafa þurft að horfa upp á næsta lamað heilbrigðiskerfi, illa leikið eftir margra ára niðurskurð. Á meðan þessu fari fram sitji þröngur hópur fólks að kjötkötlunum og geti notfært sér auðlindir þjóðarinnar að eigin vild, án þess að langstærstur hluti þjóðarinnar geti þar nokkuð aðhafst.


Sérstaka athygli vakti á dögunum þegar Magnús Pétursson ríkissáttasemjari, sem hverfur af þeim vettvangi nú í lok vikunnar, hafði á orði að ástæður átakanna í samfélaginu mætti einkum rekja til vaxandi misskiptingar. Þar þótti dómur hins varfærna embættismanns vera kominn fram. Í orðum hans felst sú áleitna spurning hverjir séu að hagnast á þeim aukna efnahagslega styrk sem stjórnarherrarnir stæra sig af um þessar mundir. 


Fréttaskýrendur, meðal annars í þáttunum Ritstjórunum á Hringbraut, hafa ítrekað bent á að pólitískur áhugi landsmanna fari vaxandi í sama mæli og áhugi þeirra á hefðbundnum flokkum fari minnkandi. Fólk fái nú fremur útrás fyrir þjóðmálaáhuga sinn með mótmælaaðgerðum og undirskriftasöfnunum, svo og á virkum samfélagsmiðlum, fremur en með fundasetu á innilokuðum flokksskrifstofum. Vinsældir Pírata megi rekja til þessa, en einnig megi lesa úr þeim kröfuna um minni upphafningu stjórnmála og að fólk á þeim vettvangi standi skil á orðum sínum í sama mæli og krafist er á meðal alls venjulegs fólks.


Í þessu umhverfi rís nú krafan um að forseti Íslands komi dæmalaust óvinsælli ríkisstjórn frá þar eð hún hafi að mörgu leyti stillt sér upp gegn þjóð sinni og boði til kosninga eins fljótt og kostur er - og auk þess verði efnt til þjóðaratkvæðagreiðslu um auðlind landsmanna í sjónum, en nærfellt 40 þúsund Íslendingar hafa nú þegað ljáð þeirri söfnun nafn sitt sem er fáheyrður fjöldi undirskrifta.  


Nærri 7000 landsmenn hafa boðað komu sína á Austurvöll í dag undir yfirskriftinni "Bylting! Uppreisn!" en í herhvötinni segir: "Almenningur sér sig nú knúinn til að koma núverandi ríkisstjórn frá störfum, hún er að valda varanlegum, óafturkræfum skaða fyrir þjóðina. Við erum reið. Við líðum þetta ekki lengur. Mótmælendur komið endilega með lykla með ykkur til að búa til hávaða og koma skilaboðunum á framfæri að þeir lyklar sem ríkisstjórnin hefur að framtíð landsins hafa þeir ekki umboð fyrir lengur, og skulu skila. Nú stendur þjóðin saman og lætur heyra í sér!“