Vaxandi kannabis-túrismi á íslandi

Ferðamönnum sem sækja Ísland heim stendur til boða að panta sér kannabis-efni áður en lagt er af stað til landsins og eru þau svo afgreidd við komuna til Keflavíkur af þar til bærum þjónustuaðilum.

Í mörgum tilvikum eru það erlendar netsíður sem hjálpa til vip útvegun efnannan héer á landi sem annars staðar, að því er fram kemur í úttekt Morgunblaðsins á mæalinu í dag. Þar segir að kannabis-túrismi sé vaxandi víða um heim og Ísland fylgi þar straumnum eins og önnur vinsæl ferðamannalönd. Einkum eigi þetta þó við lönd þar sem neysla kannabisefna hefur verið gerð lögleg, svo sem í Bandaríkjunum og Hollandi, en í mörgum öðrum löndum hefur verið tekin upp frjálslyndari stefna varðandi kannabisneyslu en verið hefur um langa hríð.

Útlendingar á leið til landsins virðast þannig eiga mjög auðveelt með að úvega sér efni af þessu tagi, hvort heldur er í gegnum erlendar svo sem áður segir, en einnig með aðstoð innlendra síðna, en aðp minnsta kosti ein fésbókarsíða, Iceland Weed, býður upp á að ferðamenn leggi inn pöntun fyrir efninu áður en þeir halda upp í ferðalagið til eyjunnar bláu.

Í blaðinu eer vakin athygli á þeirri kostulegu tölfræði að Icelandair flýgur til allra þeirra ríkja Bandaríkjanna sem hafa leyft kannabisneyslu og segir Guðjón rngrímsson upplýsingafulltrúi flugfélagsins að menn hafi hent gaman að þessari tilviljun sem hafi þó ekkert meðp stefnu þess að gera.