Helgi Gunnlaugsson, afbrotafræðingur og prófessor í félagsfræði við HÍ, telur að aukinn straumur ferðamanna geti leitt til aukinnar eftirspurnar eftir kynlífsþjónustu og fíkniefnum.
Mælingar á kynlífshegðan sýna að ef fólk kaupir vændisþjónustu, þá er algengt að það geri það í ferðalögum, þegar það er fjarri heimkynnum sínum, að því er fram kemur í umfjöllun um þetta mál í Morgunblaðinu í dag.
Eins og Hringbraut greindi frá í gærdag hafa á annan tug mansalsmála verið í rannsókn hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu frá því í apríl í vor. Málin teygja sig til allra heimsálfa og tengjast ýmist kynlífsþrælkun, nauðungarvinnu eða málamyndahjónaböndum.
Alda Hrönn Jóhannsdóttir, aðstoðarlögreglustjóri lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, staðfesti þetta og fullyrti jafnframt að konur og ungmenni hafi verið flutt til landsins frá Austur-Evrópu, Kína og Nígeríu.
Í Morgunblaðinu í fyrradag er sagt frá því að Deseret News, fjölmiðill í Utah í Bandaríkjunum, hafi eftir Öldu að konur og börn séu flutt til landsins frá Austur-Evrópu, Kína og Nígeríu og að aukinn ferðamannastraumur hafi leitt til vaxtar í kynlífsferðamennsku og vændi á Íslandi.
Spurð um aukna kynlífsferðamennsku segir Alda við blaðið að Ísland sé ekki eyland úti í heimi þar sem ekkert gerist: \"Ísland er hluti af heiminum og það sem er að gerast í heiminum er líka að gerast á Íslandi. Það er alltaf þannig. Þar sem er aukin ferðamennska fylgir aukinn kynlífstúrismi,“ segir Alda.
Hún segir að engin tölfræði liggi fyrir um hversu algengt mansal sé. Þó sé um aukningu að ræða: \"Við erum að fá tilkynningar um vændi. Það er t.d. stundað vændi á hótelum og í airbnb-íbúðum,“ segir Alda í blaðinu og bætir við að vitað sé um dæmi um að erlendir ferðamenn komi til landsins til að taka þátt í kynlífsferðamennsku.