Enn ein krappa lægðin fer yfir landið í kvöld og leikur Sunnlendinga einna verst. Ef til vill er það eina sem hún hefur sér til ágætis er að talsverð hlýindi fylgja henni, en það hefur þó í för með sér mikið vatnsveður sem hætt er við að nái allt frá Mýrdalnum í austri inn á höfuðborgarsvæðið.
Talsverð ofankoma hefur verið á suðvestanvrðu landinu í morgun með tilheyrandi töfum á umferð, jafnt á vegum sem og í lofti, en hundslappadrífa árdagsins hefur gert það að verkum að erfiðlega hefur gengið að afísa vélar til flugs, bæði á Reykjavíkurflugvelli og á Keflavíkurflugvelli en á báðum völlunum muna starfsmenn vart aðra eins og tíð og verið hefur frá byrjun desember á síðasta ári; líkast til hafi tafir og tapaðir flugdagar sjaldan eða aldrei verið meiri og fleiri en á þessum vetri.
Færð á vegum er skapleg víðast hvar samkvæmt upplýsingum Vegagerðarinnar, en þæfingsferð og hálka einkennir þó flestar þjóðleiðir.