Vatnsgusa í geimnum vekur lífsvonir

Óvænt vatnsgusa á könnunarfar bandarísku geimvísindastofnunarinnar NASA hefur kveikt vonir vísindamanna um að líf gæti fundist á einu tungla Júpíters, Evrópu, að því er segir í frétt á vef hins opinbera, ruv.is.
 
Vatnið gaus upp úr íshellunni sem umlykur tunglið, og náði yfir 150 kílómetra hæð, mðað við gögn frá Galileo könnunarfari NASA.

Ef slíkir goshverir eru algengir á Evrópu gætu könnunarför sem NASA og evrópska geimvísindastofnunin ESA senda á næstunni leitað ummerkja um líf í sjónum undir íshellunni. 

Galileo hringsólaði um Evrópu í átta ár, og fór hvað næst tunglinu 16. desember 1997. Þá fór farið innan við 400 kílómetra frá yfirborði tunglsins, og tóku vísindamenn eftir merkjum frá þeim tíma sem þeir gátu illa útskýrt þá. Þeir ákváðu hins vegar að rannsaka þau aftur eftir áhugaverðar myndir úr Hubble sjónaukanum frá 2016. Þar leit út fyrir að vatn væri að gjósa hátt í loft upp frá tunglinu. Samkvæmt gögnum Galileos jókst eðlismassi rafgass, eða jónaðs gass, um það leyti sem könnunarfarið flaug næst tunglinu. Guardian hefur eftir vísindamönnum að samkvæmt þeirra útreikningum eru það einmitt viðbrögðin sem goshver sem spýtir vatni nærri 200 kílómetra upp í loftið myndi sýna.

Bæði NASA og ESA eru með frekari könnunarferðir á Evrópu á áætlunum sínum. Báðar stofnanir reikna með því að leiðangrar þeirra fari á loft á næsta áratug, segir í frétt Ríkisútvarpsins.