Vatnsbotn náttúruperlu eins og eyðisandur

Á aðalfundi Veiðifélags Laxár og Krákár þann 30. apríl 2016 komu fram þungar áhyggjur félagsmanna af ástandinu í lífríki Laxár og Mývatns.  Mörg alvarleg teikn eru á lofti í lífríki Mývatns og Laxár og fara félagsmenn þess á leit að æðstu yfirvöld umhverfis-, atvinnu-, og fjármála í landinu beiti sér fyrir því að rannsóknir á svæðinu verði efldar og stuðli að því að gripið verði til þeirra aðgerða sem að gagni mega koma.

Lífríki Mývatns og Laxár hefur verið undir miklu álagi undanfarna áratugi og svæðið er á rauðum lista Umhverfisstofnunar fjórða árið í röð. Kúluskíturinn, sem aðeins finnst á einum öðrum stað í heiminum, er horfinn. \"Botni Mývatns má líkja við uppblásinn eyðisand,\" segir í ályktun veiðifélagsins.

Bleikjan hefur verið nánast friðuð í Mývatni í nokkur ár til að koma í veg fyrir útrýmingu. Hornsílastofninn er í sögulegri lægð. Bakteríugróður, sem Mývetningar kalla leirlos, fer vaxandi og hefur síðustu tvö sumur verið með fádæmum og langt yfir þeim heilsuverndarmörkum sem Alþjóða heilbrigðismálastofnunin miðar við í vötnum þar sem útivist er stunduð. Leirlos í svo miklu magni hefur mjög neikvæð áhrif á lífríki Laxár allt til sjávar, sem og upplifun veiðimanna á svæðinu, segir í ályktun veiðifélagsins.