Mál Sigríðar Á. Andersen, dómsmálaráðherra bar hæst í Ritstjórum vikunnar og sýndist þar sitt hverjum sem sátu með Sigmundi Erni við hringborðið, en það voru fjölmiðlamennirnir Karl Garðarsson og Logi Bergmann Eiðsson.
Þeir telja annaðtveggja að málið muni þjappa sjálfstæðismönnum að baki dómsmálaráðherra og stjórnarliðum öllum, en lítll sem enginn möguleiki sé á því að einhverjir þeirra hlaupist undan merkjum.
Einu gildi þótt embættisfærsla Sigríðar hafi verið dæmd ólögmæt af Hæstarétti og skaði ef til vill réttaróvissu og baki stjórnvöldum ef til vill skaðabótaskyldu, vantrauststillagan sé ákveðið sjónarspil í máli sem auðvelt sé að halda endalaust á lofti.
Það sé hins vegar pólitískt súrralískt að sjá vinstri græna klappa dómsmálaráðherra upp, sama fólkið og barði á henni fyrir örfáum mánuðum, en sinnaskiptin sýni öðru fremur hvað pólitísku u-beygjurnar á Íslandi geti verið krappar.
Borgarpólitíkin og staða Samfylkingarinnar að afloknum landsfundi er einnig til tals í Ritstjóraþættinum að þessu sinni sem er frumsýndur sem fyrr á þriðjudagskvöldum en einnig sjáanlegur á vefnum hringbraut.is undir flipanum sjónvarp.