Varnamálaráðherra Noregs segir af sér vegna hneykslis

Odd Roger Enoksen, varnarmálaráðherra Noregs, hefur sagt af sér embætti eftir að upp komst um kynferðislegt samband hans við unga konu.

Norskir miðlar greina frá.

Enoksen komst í kynni við konuna árið 2005 sem þá var átján ára og hann fimmtugur að aldri.

Konan kom í vettvangsferð með skólanum sínum að heimsækja norska þingið og þar fengu nemendurnir að hitta Enoksen sem átti í nánum samskiptum við konuna eftir ferðina.

„Ráð­herrar eiga líka einka­líf, og ráð­herrar geta einnig átt sam­bönd fyrir utan hjóna­bandið“ sagði Enok­sen við blaða­menn þegar hann til­kynnti af­sögn sína fyrr í dag.

Í um­fjöllun VG.no um málið segir að Enok­sen og konan, sem er á þrí­tugs­aldri í dag, hafi kallað hann „kyn­ferðis­legan læri­faðir“ hennar. Enok­sen stað­festi það.

Konan greindi fyrst frá sambandinu nýlega en hafði ekki þorað að stíga fram áður. Hún segir sambandið hafa haft mikil áhrif á líðan hennar síðustu 15 ár.

Konan og Enoksen greinir á um hvers eðlis samband þeirra var, konan segist hafa verið í sambandi við Enoksen en hann segir að aðeins hafi verið um framhjáhald að ræða.