Logi Bergmann fjölmiðlamaður segir að þrátt fyrir öldur frásagna, um „hvað Ísland sé ömurlegt“ og dýrasta land í heimi, þá þurfi að hafa í huga að laun hafi yfirleitt áhrif á verðlag. Fjölmargir Íslendingar tali um hversu gott sé að njóta lífsins á Spáni eða Ungverjalandi, þar sem verðlag sé talsvert lægra og hægt að fara oft út að borða án þess að skuldsetja sig.
„Það er klárlega rétt að verðlag er mjög hátt á Íslandi og miklu lægra á Spáni. Sérstaklega þegar það kemur að matvælum. Og að það er jafnvel enn ódýrara að búa í Ungverjalandi. Skýringin liggur kannski í laununum,“ skrifar Logi í leiðara sínum í Sunnudagsmogganum í dag.
Þar bendir hann á að meðallaun á Íslandi séu 5.192 evrur, á Spáni 2.244 og í Ungverjalandi 1.151. Lágmarkslaun séu 2.330 evrur, á Spáni 1.050 og Ungverjalandi 309.
„Einhverjir hafa brugðið á það ráð að flytja til láglaunasvæða til að hafa það aðeins betra í ellinni. Auðvitað er það skiljanlegt. Jafnvel þótt ekki væri nema bara til að losna við endalausar lægðir í janúar.“
Myndi fólk vilja lækka laun hér á landi til að fá lægra verð?
Ef skoðað er samhengið kemur í ljós að laun eru hærri þar sem dýrara er að lifa. Logi skrifar um laun erlendra ríkisborgara, sem eru yfirleitt talsvert lægri en laun Íslendinga hér á landi.
„Er það bara alveg eðlilegt að valsa með snjallsímann sinn, á íslenskum ráðstöfunartekjum, um útlenskar kjörbúðir með starfsfólk á lúsaralaunum, að mynda lága verðið? Deila því svo út um allt og tala um að allt sé hræðilegt á Íslandi? Hittir þetta sama fólk einhvern tímann spænskan eða portúgalskan ellilífeyrisþega sem dásamar hversu gott er að lifa af ellilífeyrinum í heimalandinu?“