Varúð: makalaus vinnustaðateiti!

Sr. Pálmi Matthíasson, sóknarprestur Bústaðarkirkju segir makalaus vinnustaðapartý ekki æskileg fyrir hjón. Sr. Pálmi var meðal gesta í þættinum Ég bara spyr á Hringbraut í gærkvöld, en þar var rætt um hjónaskilnaði.

Sr. Pálmi segir í þættinum, sem endursýnddur verður í dag á Hringbraut að fólk gleymi oft að gefa sambandinu tíma og hlúa að því. Vinnan kalli í sífellu, ekki síst í því samfélagi sem nú er þar sem fólk er fjartengt vinnu nánast allan sólahringinn í gegnum tölvupóst og síma.

Í þættinum er einnig rætt við Oddgeir Einarsson, hæstaréttarlögmann og einn eigenda OPUS lögmannstofu. Hann segir þau mál sem koma upp í kjölfar hjónaskilnaða, oft vera flókin. Má þar nefna ágreiningsmál fólks sem hefur búið lengi í sambúð en er ekki gift. Þar gerist það oft að fólk þarf að leggja fram sönnunargögn um til dæmis, hver á hvað.

Þá segir Oddgeir réttindi foreldra þar sem barn á lögheimili, mun meiri en hjá því foreldri þar sem barnið er ekki skráð með lögheimili. Skipti þá engu máli, hvort barnið búi til jafns hjá báðum foreldrum.

Þáttinn má einnig nálgast hér á hringbraut.is.