Ummæli Bjarna á fundinum voru um margt eftirtektarverð
Bjarni Benediktsson forsætisráðherra hélt ræðu í Norræna húsinu hinn 9. febrúar síðastliðinn. Varðberg bauð til fundarins. Ræðan var mest um nýstofnað þjóðaröryggisráð.
Á fundinum vék Bjarni einnig að tveimur málum sem hafa verið ofarlega á baugi á undanförnum mánuðum. Það er annars vegar útganga Stóra-Bretlands úr Evrópusambandinu eða Brexit og hins vegar kjör Donald J. Trump í embætti forseta Bandaríkjanna.
Hvað Brexit varðar sagði Bjarni bresk stjórnvöld standa vel að útgönguferlinu. Tryggja yrði góða viðskiptasamninga Íslands við Stóra-Bretland.
Varðandi Donald J. Trump þá taldi Bjarni að sigur hans megi rekja til þess að hann höfðar til hins vinnandi manns og spilaði þess utan á ótta margra.
Bjarni telur að það eigi ekki að hræðast það þó Donald J. Trump sé óhefðbundinn stjórnmálamaður. Bjarni segist ekki sammála honum í öllum málum. Hann telur of snemmt að hafa verulegar áhyggjur af forsetatíð Trump.
Forystugrein Morgunblaðsins í dag víkur að ummælum forsætisráðherra á Varðbergs fundinum. Foystugreinin segir að alþjóðlegir pópúlistar í fjölmiðlum og á vinstri kanti stjórnmála hafa farið mikinn fyrstu tvær starfsvikur nýs forseta Bandaríkjanna.
Ístöðulausir stjórnmálamenn hér á landi sem að öðru jöfnu hafa ekki haft horn í síðu Bandaríkjanna hafa hrifist með í pópúlismanum og sumir hlaupið illa á sig.
Nú vill svo til segir í forystugreinini að allmargir ráðherrar núverandi ríkisstjórnar voru með flaustursleg og vanhugsuð viðbrögð og töldu sig þurfa að hafa skjól í hávaðanum sem var magnaður upp.
Hin varfærnislega ofanígjöf Bjarna Benediktssonar forsætisráðherra er því sanngjörn og getur vonandi að nokkru bætt úr þeim skaða sem orðinn var.
Bjarni minnti fundarmenn á að horfa til málefna Donald J Trump frekar en moldviðrisins í kringum hann. Það er mikilvægt fyrir Íslendinga að tryggja góð samskipti við Bandaríkjamenn.
Vísaði Bjarni meðal annars í varnarsamning þjóðanna.
Nánar á www.vardberg.is og á www.mbl.is