Varð vitni af óskiljanlegu atviki í Rush: „Pabba hjartað brotnaði í morgun”

Ingimar Elíasson skrifar í dag pistil um að eigin sögn skelfilega upplifun þegar hann var í trampólíngarðinn Rush með syni sínum.

Ingimar sem er maðurinn hennar Margrétar Gnarr byrjar færsluna á því að biðla til fólks að hætta lestri ef það er viðkvæmt áður en hann lýsti því sem hann segist aldrei hafa séð áður.

Þarna hafi hann séð sex börn klædd Liverpool treyju á svæðinu en hann segir að syni sínum hafi verið brugðið að sjá þetta.

Ingimar endaði færsluna á því að hvetja foreldra til að halda þessum fatnaði á bak við luktar dyr heimilisins og að hann hafi minnt son sinn á að ekki öll börn væru jafn heppin með foreldra og hann.