Varð óvinnufær eftir bílslys

Friðrik Ottó Ragnarsson, starfaði sem járnsmiður en þurfti frá að hverfa eftir bílslys. Hann segir erfitt að detta allt í einu út af vinnumarkaði og um tíma hafi hann ekki vitað hvernig hann ætti að beita sér eða hvar hann ætti að fá aðstoð, til að koma sér af stað á ný.

Þórdís Lóa Þórhallsdóttir ræddi við Friðrik Ottó í þættinum Sjónarhorn sem sýndur var á Hringbraut í gærkvöld, en þar kom fram að Friðrik Ottó er einn þeirra sem fékk aðstoð frá VIRK starfsendurhæfingarsjóðnum, sem hann segir hafa skipt sköpum.

Í þættinum kom fram að 72% þeirra einstaklinga sem ljúka þjónustuferli hjá VIRK starfsendurhæfingarsjóði, ná að fara aftur á vinnumarkaðinn.

Meðal gesta í þættinum voru Vigdís Jónsdóttir, framkvæmdastjóri VIRK starfsendurhæfingarsjóðs og Ása Dóra Konráðsdóttir, sviðsstjóri starfsendurhæfingar hjá sjóðnum. Þær sögðu allt að 48 ráðgjafa starfa fyrir sjóðinn um land allt og markmiðið sé fyrst og fremst að hjálpa einstaklingum sem hafa lent í slysum eða áföllum, með þeim afleiðingum að fólk hættir að geta unnið.

Og árangurinn sé mikill, eins og saga Friðriks Ottós beri vitni um.

 

Horfðu á klippur úr þætti kvöldsins