"Við vorum upplýst um það á dögunum að Áfengis- og tóbaksverslun ríkisins standi ekki lengur undir sér. Hvað er eiginlega að þessari þjóð? Ef við getum ekki einu sinni druslast til að drekka upp í halla ríkissjóðs, þá er nú fokið í flest skjól."
Með þessum orðum hóf Karl Ágúst Úlfsson þátt sinn Helginni á sjónvarpsstöðinni Hringbraut í gærkvöld og bætti við: "Nema þetta sé nýstárleg baráttuaðferð drykkjumanna og reykingafólks fyrir bættum kjörum. Í stað verkfalla fara menn í svokallað drykkfall til að þjarma að ríkinu. Hver veit," spurði lEikarinn góðkunni.
"Og talandi um verkföll," hélt hann áfram "þá hafa Samtök atvinnulífsins lýst því yfir að ef gengið verði kröfum launafólks verði óhjákvæmilegt að segja upp starfsfólki og hækka verð á vöru og þjónustu. Vá, hvað mér létti þegar ég áttaði mig á að ekki stæði til að lækka arðgreiðslur eða bónusa hjá stjórnendum," stundi gamli spaugstofumaðurinn upp úr sér og hélt áfram: "Og á meðal algjörra forgangsmála á þinginu sem nú er að ljúka eru húsnæðisfrumvörp Eyglóar Harðardóttur félags- og húsnæðismálaráðherra, sem verða kannski lögð fyrir þingið áður en því lýkur, en líklega samt ekki, en samt vonandi, en samt tæplega, og þó. En samt aldrei að vita - ef þingið hefur ekkert þarfara að gera. En því miður eru mörg önnur forgangsmál sem tekst kannski að taka fyrir. En samt líklega ekki. Og þó."
Karl er aldrei alveg viss, og þó: "Lögreglan í Reykjavík hefur gengið hart fram í því á undanförnum dögum að afvopna borgarbúa sem hafa gert sig líklega til að mynda lögregluna við skyldustörf sín. Þetta vandamál verður að sjálfsögðu mun auðleystara loksins þegar lögregluþjónar á Íslandi fá almennilegar hríðskotabyssur."
Áfram hélt leikarinn: "Okkur var greint frá því í vikunni að nú ættum við von á að fá nýtt Icesave mál í hausinn. Fyrirgefiði, en vorum við ekki búin að kjósa þetta mál frá okkur í þjóðaratkvæðagreiðslu? Vorum við ekki búin að segja Bretum og Hollendingum að fokka sér? Vorum við ekki búin að segja að við ætluðum ekki að borga skuldir óreiðumanna? Nú er ekki nema eitt úrræði í stöðunni: Við verðum að endurkjósa Ólaf Ragnar einu sinni enn. Já, og fá Davíð Oddsson aftur í Seðlabankann."
Hann getur ekki hætt: "Þessa dagana stendur yfir átakið ‘‘Hjólað í vinnuna’’. Fólk er sem sagt hvatt til að hjóla í vinnuna, það er að segja ef það er ekki í verkfalli. Nú vill kjötiðnaðurinn í landinu að ríkið beiti sér fyrir öðru átaki, sem beri nafnið ‘‘Hjólað í dýralækna’’."
Loks þetta: "Og þingmaður Framsóknarflokksins fékk heiftarlega í magann um borð í flugvél á leið til Bandaríkjanna að sinna utanríkismálum. Mörgum hefur orðið óglatt af stefnu Framsóknar í gegnum tíðina, en þetta er nú orðið fulláþreifanlegt fyrir minn smekk. Er ekki að minnsta kosti rétt að við höldum ógleðinni innan landsteinanna?
Og nú er það komið á daginn að það er gróft brot á mannréttindum að hýsa sakamenn í Hegningarhúsinu við Skólavörðustíg. Rúmin eru óþægileg, netaðgangur fáránlega lélegur, ofninn í gufubaðinu varla nema hálfvolgur og nuddararnir liðónýtir. Íslenska ríkið á yfir höfði sér tugi milljóna í skaðabætur til allra þeirra sem hafa þurft að gera sér þessa þjónustu að góðu í gegnum tíðina. ‘‘Það er bara eins og það sé verið að hegna manni,’’ er haft eftir einum skjólstæðingi fangelsisins."
Þátt Karls Ágústs má sjá í heild sinni undir sjónvarpsflipanum á hringbraut.is og einnig klippur úr honum á forsíðu vefjarins.