Varð fyrir að­kasti þekktra ein­stak­linga vegna Lands­réttar­málsins

Róbert R. Spanó, forseti Mannréttindadómstóls Evrópu, fékk tölvupósta frá þekktum einstaklingum með ýmsum ásökunum, meðan Landsréttarmálið var til meðferðar í Strassborg.

Þetta kemur fram í helgarviðtali við hann í Fréttablaðinu í dag, en hann lætur af störfum við dómstólinn núna um mánaðarmótin.

„Þótt Róbert vilji ekki gera mikið úr upp­hrópunum vegna Lands­réttar­málsins viður­kennir hann, að­spurður, að hafa orðið fyrir að­kasti að heiman. Honum bárust tölvu­póstar frá þekktum ein­stak­lingum með ýmsum á­sökunum. Fjöl­skylda hans á Ís­landi hafi orðið fyrir að­kasti líka,“ segir í viðtalinu en Róbert segist ekki vilja ræða málið nánar að sinni. „Ég bara leyfi mér að hafa þetta fyrir mig og ætla að geyma þetta fyrir endur­minningarnar,“ segir hann.

Róbert segir að­kast af þessum toga mjög sjald­gæft. „Hér hafa dómarar dæmt í málum sem hafa fellt ríkis­stjórnir en þeirra per­sónur ekki verið dregnar inn í það eins og gerðist heima fyrir.

Hægt er að lesa viðtalið við Róbert í heild hér.