Sífellt fleiri ungar konur hafa stigið fram og greint frá kynferðislegu ofbeldi sem þær hafa orðið fyrir. Stafrænt kynferðislegt ofbeldi hefur aldrei verið jafn algengt og eru margar ungar konur að verða fyrir hefndarklámi.
Ung kona sem vildi ekki koma fram undir nafni sagði í viðtali við Vísi að það hafi verið algengt að krakkar væru að senda hvert öðru nektarmyndir og myndbönd þegar hún var í grunnskóla. Hún hafi verið meðal þeirra sem lentu í slæmum aðstæðum í kjölfarið.
„Það gerðu það bara allir og mikið var verið að senda myndbönd af sér af gera eitthvað og ég og vinkonur mínar fengum líka oft typpamyndir án þess að hafa beðið um það að fyrra bragði,“ segir hún.
Þá segir hún stelpurnar hafa verið að senda myndir af sjálfum sér vera að snerta sig eða dansa og á þeim tíma vissu þær ekki að móttakandinn gat vistað myndirnar og sent á hvern sem er.
Segir hún dreifingu myndanna hafa verið það algenga að oft kom upp nýtt mál í hverri viku. Það hafi verið líkt og um verkefni hjá strákunum væri að ræða.
„Ef þú sendir ekki myndir varstu leiðinleg eða einskis virði. Það var tuðað eða maður niðurlægður fyrir að vilja ekki senda eða farið í að vera ógeðslega næs.“
Sjálf var hún aðeins fimmtán ára gömul þegar hún lenti í hefndarklámi á netinu. Þá segist hún hafa verið byrjuð að tala við strák sem hún treysti og datt ekki til hugar að hann myndi senda myndina neitt áfram. Í kjölfarið ætlaði hún að ljúka samtalinu og fara að sofa en þá hafi hann byrjað að hóta henni.
„Hann sagði þá að ég væri ekki að fara að sofa heldur ætti ég að hlýða annars færu myndirnar af mér um allt internet,“ sagði hún. Sem betur fer lét hún móður sína vita áður en málið þróaðist lengra en hún var sjálf logandi hrædd í langan tíma eftir þetta.
Þá telur hún að það sé enn algengt í dag að krakkar skuli senda nektarmyndir á milli og að erfitt sé að viðurkenna það fyrir forráðamönnum.
Hægt er að sjá viðtalið í heild sinni hér.