Varaþingkonan Herdís varðist hnífstungum

Herdís Anna Þorvaldsdóttir, varaþingmaður Sjálfstæðisflokksins, sem sat á þingi í viku fyrir Guðlaug Þór í desember 2019, varð fyrir stórhættulegri hnífstunguárás að tilefnislausu á heimili sínu síðasta sumar.

Maðurinn sem réðst á hana heitir Þorlákur Fannar Albertsson en hann leigði af henni kjallaraíbúð á Langholtsvegi í Reykjavík.

Hann birtist skyndilega í íbúð Herdísar Önnu síðasta sumar vopnaður stórum hníf og sagðist ætla að drepa hana. Hún hlaut ellefu stungusár í árásinni en Þorlákur reyndi að stinga hana ítrekað í höfuðið, háls og efri hluta líkama en henni tókst að sveigja sig undan hnífslaginu og bera hendur og fætur fyrir sig.

Hann var dæmdur í sex og hálfs árs fangelsi í Héraðdsómi í gær fyrir tilraun til manndráps,alvarlega líkamsárás og frelsissviptingu á síðasta ári. En auk þess að hafa ráðist á Herdísi af tilefnislausu þá hafði hann einnig framið alvarlega líkamsárás, frelsissviptingu og fjölda annarra brota stuttu áður.

Fjallað var um málið í kvöldfréttum Stöðvar 2í gær en þar sagði Herdís að mörgum spurningum væri enn ósvarað.

„Þetta þurfti ekki að eiga sér stað, þ.e. maðurinn var búinn að brjóta svo mikið af sér. Hann var orðinn svo hættulegur. Manni finnst að einhversstaðar í kerfinu hafi einhver átt að átta sig á því að maðurinn var stórhættulegur umhverfi sínu og sjálfum sér.  Ég skil ekki að það hafi ekki  verið til úrræði eða að úrræðum hafi ekki verið beitt til að hjálpa bæði honum, sem var á hræðilegri vegferð og mér og öðrum almennum borgurum,“ segir Herdís.

Hún sagði einnig að einhver hefði átt að láta sig vita af því að maðurinn var síbrotamaður áður en hún fór að leigja honum út íbúð.

Herdís hefur enn ekki náð sér að fullu en segir að það hafi hjálpað til að hún hafi veri vel á sig komin þegar árásin átti sér stað og hafi því tekist að verjast.