Thor Aspelund, prófessor í líftölfræði við Háskóla Íslands, gagnrýnir óheppilegan samanburð frá lækni í Bandaríkjunum sem birtist í morgunblaðinu í gær.
Hann tekur í sama streng og sérnámslæknir Landspítalans Jón Magnús Jóhannesson sem sagði fréttina misvísandi og ekki í takt við ástandið.
Tíu sinnum fleiri dauðsföll
„Fjöldi dauðsfalla vegna COVID-19 í BNA er hrikalegur,“ skrifar Thor. Spáð sé að 315 þúsund manns verði látin þar í landi fyrsta desember níu mánuðum eftir að faraldur hófst, en fjöldi látinna nú er um 186 þúsund.
„Á ári, miðað við spá, væru það þá 420,000 tilfelli. Til samanburðar látast um 40,000 á ári vegna bílslysa þar og um 40,000 vegna skotvopna.“ Það sé tíu sinnum minna.
Aðgerðir í meðallagi
„Byrði COVID-19 er gífurleg. Hvernig má líka bera saman nokkurra mánaða dánartíðni vegna COVID-19 saman við ævilíkur á að deyja úr hjarta og æðasjúkdómi eins og gert er í greininni?“ spyr Thor.
„Aðgerðir hér eru í meðalhófi.“ Ósanngjarnt sé að nota það gegn þjóðinni og hvetja til tafarlausra tilslakanna. „Með skimun hefur tekist að koma í veg fyrir mörg innflutt smit á landamærum. Frekar mætti að bæta í meðalhófið í BNA. En það er annað mál.“
Lítið gert úr dánartíðni
Thor segir það vera óvarlegt að leggja fram eina tölu um dánarhlutfall þegar áhætta vegna sjúkdómsins eykst með aldrinum. Þeim mun verra sé að segja dánartöluna vera lága.
„[Dánartalan] hefði ekkert þurft að vera lág. Dánarhlutfallið var lágt af því að hér var tekið vel á málun og sér í lagi myndaður skjöldur um eldri borgara.“ Ástandið hefði geta verið mun verra.
„Ef vel er tekið á sóttvörnum, og þeim eldri hlíft, má halda faraldrinum niðri og bjarga mörgum mannslífum. Síðan vitum við ekkert um langtímaáhrif hjá þeim sem fengu sjúkdóminn. Sumir eru enn að ná sér.“
Alveg hárrétt Jón Magnús Jóhannesson læknir! Ótækur og langt frá heppilegur samanburður frá lækni í BNA sem birtist í...
Publicado por Thor Aspelund em Domingo, 30 de agosto de 2020