Varar við gerræði sigmundar davíðs

Guðmundur Steingrímsson, BF, hvatti þingmenn í umræðu undir liðnum Störf þingsins í dag til að standa í lappirnar gagnvart því sem hann kallaði „gerræði“ forsætisráðherra. Vísaði þingmaðurinn þar til lagafrumvarps sem lagt var fram á Alþingi í gær. Með því vill forsætisráðherra Sigmundur Davíð Gunnlaugsson fá heimild til að geta tekið mannvirki, lönd og framkvæmdir eignanámi ef aðstæður kalla á. Það verði gert í friðlýsingarskyni.

Eins og fram kom í frétt Hringbrautar í morgun myndi breytingin þýða að Sigmundur Davíð og aðrir forsætisráðherrar sem á eftir koma fengju vald til að láta Minjastofnun sem var flutt úr mennta- og menningarmálaráðuneytinu inn í forsætisráðuneytið eftir að Sigmundur varð forsætisráðherra, „útbúa tillögu um að tiltekin byggð, sem að mati ráðherra hefur varðveislugildi á landsvísu, verði gerð að verndarsvæði í byggð.“  Hefði Sigmundur Davíð þá einn það vald að samþykkja tillöguna.

Guðmundur varaði við því mikla valdi sem forsætisráðherra fengi ef lagafrumvarpið næði fram að ganga. Hætta á gerræðislegum tilburðum væri auðsæ og yrði að veita viðnám.

Áður hafði t.d. borgarráð Reykjavíkur lagst eindregið gegn breytingunni.

Áður hefur orðið hnútukast milli skipulagsyfirvalda í borginni og forsætisráðherra.