Varaformaður vg mokar snjó hálfnakinn

Björn Valur Gíslason, varaformaður VG og þrautreyndur sjómaður brá á leik í dag við snjómokstur fyrir framan heimili sitt á Akureyri.

\"Það skiptir mestu máli að vera með góða húfu,\" segir Björn Valur sem mokaði snjóinn að öðru leyti í lendaskýlu einni fata.

Spurður um ástæður uppátækisins segir Björn Valur í samtali við Hringbraut:
\"Tilgangurinn var að moka snjó - og sýna heimsbyggðinni að sögur af hreysti norðanmanna eru engar ýkjur.\"

Spurður hvort honum hafi ekki verið kalt að moka berfættur, svarar Björn Valur að að meðaltali hafi honum ekki verið kalt við moksturinn.
Björn hefur birt nokkrar myndir af sér léttklæddum við snjómoksturinn á facebook. Hann gaf Hringbraut góðfúslegt leyfi til að miðla einni þeirri.
Hann getur þess jafnframt að þakka megi Akureyrarbæ fyrir að hrúga snjónum upp í stóra hauga í götunni þannig að hún sé ökufær af og til.
Leita þarf áratugi aftur í tímann til að finna viðlíka snjó og nú er á Akureyri. Eftir því sem Hringbraut kemst næst er Björn Valur eini íbúinn sem mokar snjóinn, hálfnakinn - og léttur í sinni að auki.