Varaformaður Samfylkingarinnar með kenningu um eldri konur sem koma ofbeldismönnum til varnar

„Skrýtinn hópur þessar eldri konur í kommentakerfum og á samfélagsmiðlum sem finnst orrustan gegn ofbeldismönnum, metoo og kó hafa gengið of langt; mál sé að linni. Blanda af sjúklegri meðvirkni og kannski stressi um afdrif ógeðskarla í nærumhverfi? Hvernig greinið þið þetta?,“ spyr Stefán Hrafn Hagalín, samskiptastjóri Landspítalans, í færslu á Twitter.

Vísar hann þar til harðra ummæla í athugasemdakerfum vefmiðla undir fréttum um ásakanir á hendur meintum ofbeldismönnum.

Heiða Björg Hilmisdóttir, varaformaður Samfylkingarinnar, er með kenningu um þennan hóp og afstöðuna í málum sem þessum:

„Óttast mögulega að horfast í augu við að vera þolendur. Þetta "ríða búið bless" eins og það var kallað skilur eflaust eftir allskonar tilfinningar ef farið er að pæla í hlutunum,“ segir Heiða Björg.

Heiða Björg, sem hefur verið fyrirferðarmikil í #MeToo-umræðunni hefur verið tíðrætt um þessa hluti síðustu daga. Vitnar hún meðal annars í Guðrúnu Ögmundsdóttur, sem lést árið 2019. „Það lýgur enginn upp á sig harmi,“ sagði Gunna Ö vinkona mín. Enda hvers vegna ætti einhver að gera það?“