Varað við stormi vestanlands

Veðurstofan varar við stormi á vestanverðu landinu í dag, ekki síst á Snæfellsnesinu, en lægðalestin sem fer nú yfir landið hefur valdið usla víða í byggð, enda virðiast æði margir ekki láta segjast á þessum árstíma.

Þetta má að minnsta kosti ráða af orðum Smára Sigurðssonar í Morgunblaðinu í morgun sem spyr hvort það sé eðl,ilegt að björgunarsveitir komi í þriðja sinn á fáeinum dögum og geri við skjólvegg í einum og saman garðinum sem vindurinn hefur feykt um koll. Þá þekki menn dæmi þess að sama trampóliniðhafi tekist á loft úr einum og sama garðinum oftar en einu sinni, en alltof algengt sé að fólk haldi að ekkert gerist í þeirra ranni þótt aðrir þurfi að fergja hluti hjá sér.

Í reynd sé merkilegt út af fyrir sig að landsmönnum komi það á óvart, ár eftir ár að vind herði á haustin, en björgunarsveitarmenn vilja þó taka það fram að flestir landsmenn taki mark á viðvörunum Veðurstofunnar.

Og viðvörun dagsins er stormur um vestanvert landið. Það slær yfir 20 metra, jafnvel upp undir 25 metra á sekúndu og súldar með vindum um vestanvert landið, en þurrt verður að kalla um norðan- og austanvert landið.

Heldur lægir á morgun.