Varað við stormi í kvöld

Veðurstofa Íslands varar við austan stormi eða roki á Suðaustanverðu landinu síðdegis til fyrramáls. Má jafnvel búast við um 30 m/s í meðalvindi undir Eyjafjöllum, í Vestmanneyjum og í Öræfasveit. Appelsínugul viðvörun hefur verið gefin út á Suðurlandi, Suðausturlandi og Miðhálendi og bent á að ekkert ferðaveður verði á meðan viðvörunin sé í gildi.

Í viðvörun Veðurstofunnar segir: „Austan og síðar norðaustan stormur eða rok, 20-28 m/s, en jafnvel allt að 30 m/s seint um kvöldið og fram á nótt, þar á meðal í Vestmannaeyjum. Búast má við snörpum vindhviðum við fjöll, yfir 40 m/s, einkum undir Eyjafjöllum og Mýrdalsjökli. Samgöngutruflanir líklegar og ekkert ferðaveður meðan viðvörunin er í gildi. Fólk er hvatt til að sýna aðgát og ganga frá lausamunum til að forðast foktjón.“