Varað við snjóflóðum og sólbruna

Fólki á ferð í fjalllendi er beint á óstöðug snjóalög eru víða um land og því hætta á ferðamenn komi af stað snjóflóðum, að því er segir í viðvörun Veðurstofu Íslands í dag.

Þar segir einnig að óvenjulágt óson mælist nú yfir Íslandi og er spáð sólbjörtu veðri í dag. Ef útvistarfólk er um lengri tíma í sól, þar sem snjór einnig hylur jörðu, er rík ástæða til að verja sig gegn geislum sólar, t.d. með því að nota sólgleraugu og sólvörn.

Ósonlagið er svæði í efri hluta lofthjúps jarðar þar sem styrkur ósons er meiri en annars staðar í lofhjúpnum, að því er fram kemur á Vísindavef Háskóla Íslands. Lofthjúpurinn er þunnt gaslag utan um jörðina. Hann er að mestu úr súrefni og nitri en í honum eru einnig aðrar gastegundir. Óson finnst í raun alls staðar í andrúmsloftinu en í mismiklu magni eftir hæð. Mestur eru styrkurinn í um 20 km hæð frá jörðu.