Varað við sandfoki og keyfandi byl

Með hvassri norðanáttinni sem ríkir á landinu fylgja él eða ofanhríð og skafrenningur í allan dag á Norður- og Austurlandi. Sérstaklega verður blint og kóf á fjallvegum austan Eyjafjarðar og allt austur á Firði. Einnig skefur á heiðum á Vestfjörðum og talsverður éljagangur er á Holtavörðuheiði, en ljóst er að þar verður mikil umferð í dag vegna loka Andrésar Andar leikanna á Akureyri þar sem þúsundir sótti bæinn heim.


Bálhvasst verður suðaustanlands frá Höfn austur í Berufjörð og er reiknað með hviðum frá 30 til 40 m/s og sandfoki. Á Skeiðarársandi og Mýrdalssandi er einnig viðbúið að sandfok verði síðar í dag. Mikið hvassviðri er í Hvammsfirði og gæti orðið sandfok þar. 


Vegir eru greiðfærir að heita má um allt sunnanvert landið samkvæmt upplýsingum Vegagerðarinnar. Á Vestfjörðum er snjóþekja og raunar þungfært á Ströndum norður, skafrenningur er á Bröttubrekku og hálkublettir og skafrenninru sem fyrr segir á Holtavörðuheiði. Skafrenningur er einnig á Fróðarárheiði og í Svínadal.