Varað við ofsaveðri sunnanlands

Búist er við ofsaveðri síðdegis með suðurströndinni. Á þeim slóðum verður meðalvindur yfir 28 m/s, en hviður geta farið yfir 50 m/s við Öræfajökul og undir Eyjafjöllum.

Úrkoma á þessum slóðum byrjar sem snjókoma, en færir sig yfir í slyddu með tilheyrandi krapa á vegum. Það verður því ekkert ferðaveður með suðurströndinni síðdegis.

Versta veðrið verður syðst, en það hvessir einnig annars staðar á landinu og undir kvöld verður víða orðið norðaustan hvassviðri eða stormur, 15-23 m/s, með skafrenningi og síðar snjókomu þegar úrkomubakkinn færir sig norður yfir landið. Athygli er einnig vakin á því að á morgun er útlit fyrir norðan storm með stórhríð á norðanverðu landinu, en sunnanlands verða stöku él og skafrenningur.

Á sunnudag er útlit fyrir að lægi mikið og létti til, en þá má búast við talsverðu frosti.