Varað við ofsaveðri á morgun

Veðurstofan hefur gefið út viðvörun. Búist er við stormi (meðalvindi yfir 20 m/s) á landinu síðdegis á morgun og ofsaveðri (meðalvindi yfir 28 m/s) við Öræfajökul, Mýrdalsjökul, Eyjafjöll og í Vestmannaeyjum.


Það er hæglætisveður á landinu í dag, en á morgun syrtir í álinn, þegar djúp lægð (niður undir 940 mb) nálgast landið úr suðri.
Hviður geta farið yfir 50 m/s við Öræfajökul og undir Eyjafjöllum. Úrkoma á þessum slóðum byrjar sem snjókoma, en færir sig yfir í slyddu með tilheyrandi krapa á vegum. Það verður því ekkert ferðaveður með S-ströndinni síðdegis á morgun. Versta veðrið verður syðst, en það hvessir einnig annars staðar á landinu og undir kvöld verður víða orðið norðaustan hvassviðri eða stormur (15-23 m/s) með skafrenningi og síðar snjókomu þegar úrkomubakkinn færir sig norður yfir landið.


Athygli er einnig vakin á því að á laugardaginn er útlit fyrir norðan storm með stórhríð á N-verðu landinu, en S-lands verða stöku él og skafrenningur. Austfirðir gætu sloppið framan af laugardegi í mun hægari vindi, en síðdegis á laugardag hvessir einnig þar með ofankomu. Að lokum er útlit fyrir að lægi mikið á sunnudag og létti til, en þá má búast við talsverðu frosti.