Varað við miklu vatnsveðri

Veðurstofan varar við mikilli úrkomu, vatnavöxtum og hættu á skriðuföllum á vestanverðu landinu, frá sunnanverðum á Vestfjörðum suður að Ölfusi fram til morguns. Þá er varað er við stormi á miðhálendinu í dag og á Suður- og Vesturlandi í nótt og fyrramálið.
 

Spáð er sunnanátt, víða 10-18 metrum á sekúndu. Hvassast verður vestast á landinu. Súld eða rigning, en þurrt veður og bjart með köflum norðaustantil. Hiti verður 10 til 20 stig, hlýjast norðaustanlands. Það verður vaxandi suðaustanátt í kvöld, 15-23 metrar á sekúndu í nótt. Lægir á morgun. Búast má við sunnan 8-13 síðdegis. Áfram verður vætusamt, einkum á sunnanverðu landinu, en úrkomulítið fyrir norðan.

Vegagerðin sendi í morgun út þessa viðvörun. \"Næstu daga, fram yfir miðja viku er allt útlit fyrir áframhaldandi hlýindi og jafnframt verður hvasst af suðri eða suðaustri. Vestan- og norðvestanlands stendur byljóttur og varasamur vindur af fjöllum eða á meðan öflug háloftavindröst er því sem næst kyrrstæð yfir landinu. Hafnarfjall, norðanvert Snæfellsnes, Saurbær í Dölum, Arnardalur við Súðavík ásamt Fljótum og Siglufjarðarvegi eru dæmi um þekkta hviðustaði þegar svona háttar til. Vegfarendum er bent á að fylgjast vel með vindmælingum þar til lægir aftur.\"