Undanfarið hefur borið á því að einhverjum landsmönnum hafa borist falskir tölvupóstar sem sagðir eru koma frá ríkisskattstjóra. Í þessum tölvupóstum er tilkynnt um meinta endurgreiðslu. Í tilkynningu frá ríkisskattsstjóra er áréttað að þessar sendingar séu ekki frá embættinu komnar.
Í tilkynningunni er því sérstaklega beint til fólks að opna ekki viðhengi eða hlekki í slíkum tölvupóstum, enda kunni þau að innihalda óværu.
Umfjöllun um netglæpi á Hringbraut
Í byrjun árs fjallaði Hringbraut ítarlega um netglæpi hvers konar. Linda Blöndal ræddi til að mynda við Hákon Lennart Aakerlund, yfirmann netöryggismála hjá Landsbankanum, og Hermann Þ. Snorrason, sérfræðing hjá Landsbankanum. Þar fóru þau meðal annars yfir að aldrei hafi meira tjón hlotist af þeim en á síðasta ári.
Auk þess ræddi Linda við Ölmu Tryggvadóttur, persónuverndarfulltrúi hjá Landsbankanum og áður lögfræðing hjá Persónuvernd, um ný og strangari persónuverndarlög.
Á meðal þess sem þær ræddu var mikilvægi þess að samþykkja ekki skilmála í blindni og notkun á ókeypis öppum á borð við Tinder þar sem gífurlegu magni persónuupplýsinga er safnað um þig. Alma sagði meðal annars að ef þú greiðir ekki fyrir vöruna þá ert þú varan.