„Við vörum ráðamenn þjóðarinnar við að reyna að ganga gegn uppkveðnum úrskurðum óháðrar og sjálfstæðrar úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála. Við teljum enga undanþágu verða að lögum veitta til fiskeldisfyrirtækja til starfa án gildra starfsleyfa.“
Þetta kemur fram í tilkynningu frá Náttúruverndarsamtökum Íslands, náttúruverndarfélaginu Laxinn lifi og átta veiðiréttarhöfum, sem voru sameiginlegir kærendur vegna áforma um risasjókvíaeldi norskra auðhringa og risaeldisfyrirtækja í Patreksfirði og Tálknafirði.
Tilkynningin er send út í ljósi fregna um að ríkisstjórnin ætli mögulega að grípa inn í vegna stöðunnar sem er komin upp hjá laxeldisfyrirtækjum í sveitarfélögunum eftir að úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála felldi úr gildi starfsleyfi fyrirtækjanna. Leyfin voru felld úr gildi vegna tæknilegra annmarka á útgáfu leyfanna.
Hafa ekki heimild
„Úrskurðarnefndin er stofnuð með lögum og er óháð og sjálfstæð í störfum sínum á sama hátt og dómstóll. Ráðherrar hafa því ekki heimild til að breyta úrskurðum nefndarinnar, heldur njóta deiluaðilar skv. 60. gr. stjórnarskrárinnar réttar til að bera úrskurðina undir dómstóla,“ segir í tilkynningunni.
„Því hafa norsku laxeldisfyrirtækin lýst yfir að þau muni gera og að þau muni fara fram á flýtimeðferð. Lögum samkvæmt frestar málshöfðun ekki réttaráhrifum úrskurðanna og ráðherrar hafa þar ekkert íhlutunarvald. Öll slík íhlutun bryti gegn þrískiptingu ríkisvaldsins skv. 2. gr. stjórnarskrárinnar. Ef ráðherra gerði að engu úrlausn nefndarinnar má ætla að hannstigi inn á svið dómstóla og gengi þannig á svig við ákvæði stjórnarskrárinnar.“
Nánar á
https://www.mbl.is/200milur/frettir/2018/10/07/vara_radamenn_thjodarinnar_vid/