Allt er nú til reiðu til að hefja notkun myndbandsaðstoðar við dómsgæslu (VAR - Video assistant referees) á HM í Rússlandi. Á fundi í dag í Alþjóðaráði knattspyrnusambanda (IFAB) sem er úrskurðaraðili um knattspyrnureglur, var einróma ákveðið að gefa grænt ljós á notkun tækninnar. FIFA, Alþjóða knattspyrnusambandið, tekur svo endanlega ákvörðun 16. mars um hvort tæknin verður notuð á HM, að sögn Gianni Infantino forseta FIFA.
Infantino er fylgjandi VAR tækninni og segir að hún sé orðin hluti af knattspyrnunni í dag. Johannes Holzmuller, forstöðumaður tækniþróunar hjá GIFA segir að ætlunin sé að endursýna vafaatriði á skjám leikvanganna á HM þegar dómarar grípa til myndbandsins í úrskurðum sínum.
VAR tæknin hefur verið notuð í leikjum á Ítalíu og í Englandi, Þýskalandi og á Ítalíu að undanförnu við misjafnar undirtektir en hefur t.d. enn ekki verið notuð í Meistaradeild Evrópu.