„var bara venjuleg húsmóðir ...“

Theodóra Þorsteinsdóttir segir hafa verið \"venjuleg húsmóðir í Lindahverfinu\", þegar Hrunið varð og ógnaði öllu lífsstarfi foreldra hennar sem komin voru á eftirlaunaaldur. Hún skráði sig í lögfræðinám eftir hrunið og öðlaðist styrk til að vinna mál fyrir föður sinn gegn lánadrottnum fyrir hæstarrétti með hjálp lögmanns. 

Saga Þorsteins Theodórssonar og Theodóru, dóttur hans hefur vakið mikla athygli en hún kemur fyrir í nýju heimildarmyndinni Ránsfengur, Ransacked eftir Pétur Einarsson, fyrrverandi forstjóra Straums sem hefur sagt skilið við fjármálaheiminn. Theodóra segir frá átakanlegri baráttu og að lokum sigri á Hringbraut í kvöld. Kl.21. Hún segir sömuleiðis frá nýlegu máli sem hún sjálf vann fyrir Héraðsdómi.  

Þau feðgin unnu mál gegn Landsbankanum í hæstarrétti en svipta átti Þorstein öllu ævistarfinu vegna gengisláns. Sex ára barátta þeirra tók þó sinn toll á margan hátt - og ógnaði ekki síður heilsu foreldra Theodóru en fjármunum. Móðir Thedóru lést á meðan baráttunni stóð og Þorsteinn lenti í lífshættulegu slysi.