Þorvaldur Gylfason hagfræðiprófessor heldur því fram í Fréttablaðsgrein í dag, að fleiri tilraunir en þær sem opiberlega hefur verið greint frá hafi verið gerðar til að fá laða erlenda banka að innlendum bankarekstri. Hann segir aðila innan stjórnsýslunnar, sem vitneskju hafi um málið, fullyrða í einkasamtölum að reynt hafi verið að selja erlendum bönkum hluti í íslenzkum bönkum en enginn erlendur banki hafi sýnt því áhuga.
Þorvaldur segir þessa embættismenn ekki hafa hirt um að halda vitneskju sinni til haga handa almenningi.
„Ekki fylgir sögunni hversu oft eða alvarlega þetta hefur verið reynt eða hversu stórir eignarhlutir erlendum bönkum stóðu til boða,“ segir Þorvaldur. „Skýringarnar sem erlendir bankar eru sagðir gefa á áhugaleysi sínu eru einkum þær að þeir nenni ekki að eiga neinn hluta afkomu sinnar undir óstöðugri íslenzkri krónu og þeirri rekstraróvissu sem henni fylgir,\" segir hann jafnframt í greininni.
Nánar um grein Þorvaldar hér.