Glíma mín við krabbameinið hefur breytt allri minni lífssýn - og ég er óendanlega þakklátur fyrir að hafa fengið að takast á við þessu áskorun og haft þar að lokum betur í viðureigninni við vágestinn. Og fyrir vikið nýt ég ekki bara stóru stundanna betur, heldur ekki síður þeirra litlu og hversdagslegu.
Þetta segir skemmtikrafturinn og sjónvarpsmaðurinn Sólmundur Hólm Sólmundsson, sem raunar er titlaður viðskiptafræðingur og eftirherma í símaskránni og er hann væntalega einn um þann titil. Í Mannamáli Sigmundar Ernis, sem frumsýnt var síðastliðið fimmtudagskvöld ræðir hann af fádæma hispursleysi um eitlakrabbameinið sem uppgötvaðist í hálsi hans um mitt síðasta ár - og hvernig fyrstu þættir Útsvars um haustið á eftir eru huldir þoku í minningunni. Eftir á að hyggja hefði hann átt að sleppa nokkrum þáttanna vegna sterkra áhrifa af sterunum sem hann þurfti að taka í miðri meðferðinni. En raunar hafi það líka hjálpað að hafa haft eitthvað fyrir stafni.
Hann segir andlega þáttinn skipta sköpun í sjúkdómsferlinu og honum hafi reynst mikilvægt að nota húmorinn, jafnvel þann allra svartasta, til að komast í gegnum dagana, sem margir voru erfiðir og þungir, ekki síst í fyrstu þegar auðvelt var að sannfæra sjálfan sig að þetta væri einfaldlega búið.
Hann rifjar upp æskuna, erfiðleikana við að heita Sólmundur, en kveðst hafa verið kurteis frekja á heimilinu. Og hann hafi verið dæmigert skilnaðarbarn, biturt á köflum út í pabba sinn, en þeir séu þó perluvinir í dag.
Og svo verja þeir Sigmundur Ernir góðum tíma í að ræða starf og eðli skemmtikraftisins og eftirhermutilburðina, en viðskiptafræðingurinn hefur varla fengist við annað heldur en að hafa ofan fyrir fólki síðastliðinn átta ár eða svo - og honum leiðist ekki beint sú vinna.
Mannamál er frumsýnt öll þriðjudagskvöld, endursýnt nú um helgina og einnig sjáanlegt á vefnum hringbraut.is undir flipanum sjónvarp.