Ferðafrömuðurinn, hestamaðurinn og körfuboltagoðsögnin Einar Bollason birtist áhorfendum Hringbrautar þessa vikuna í einstaklega persónulegu samtali hans við Sigmund Erni í þættinum Mannamál þar sem hann dregur ekkert undan þegar kemur að upplifun hans af að sitja saklaus á bak við lás og slá. Þáttinn má nú sjá hér á vef stöðvarinnar.
Hann segir að það hafi verið næsta vonlaust að fyrirgefa Erlu systur sinni á þeim rösku fjörtíu árum sem liðin eru frá því hann var ásamt þremur öðrum mönnum hnepptur í 105 daga gæsluvarðhald vegna rangra sakargifta Erlu og annarra þeirra ungmenna sem helst og mest flæktust í rannsóknina á Guðmundar- og Geirfinnsmálinu á áttunda áratug síðustu aldar. Það hafi verið framið mannorðsmorð á fjórmenningunum sem handteknir voru alls saklausir í örvæntingafullri tilraun rannsóknarlögreglu og saksóknara til að komast til botns í hvarfi Guðmundar og Geirfinns sem í raun og sann hefur aldrei verið upplýst. Vissulega vonist hann fyrir hönd þeirra sem dæmdir voru á sínum tíma fyrir aðild að málunum að þeir fái uppreisn æru og verði hreinsaðir af ásökunum sem ef til vill og líkast til voru engar innistæður fyrir, en í tilviki Erlu systur hans verði hins vegar að hafa í huga að hún hafi verið dæmd fyrir að ljúga upp á blásaklausa menn með hræðilegum afleiðingum fyrir þá og fjölskyldur þeirra - og hún geti ekki ætlast til að að verða hreinsuð af þeim lygum og mannorðsmorðum sem hún svo sannarlega beri ábyrgð á.
Hann hefur einu sinni hitt Erlu frá því hann sat inni í Síðumúlafangelsinu vegna ásakana hennar um aðild Einars og hinna mannanna að hvarfi Guðmundar og Geirfinns. Það var við útför systur þeirra sem lést langt um aldur fram. Erla hafi þá staðið ein afsíðis. Enginn hafi viljað við hana tala. Og hann hafi þá gengið að henni og faðmað að sér, einn viðstaddra - og fundið, eftir á, að faðmlagið hafi fært hann nær fyrirgefningunni. En hvað sem því líði geti samt enginn ímyndað sér hvað þessar röngu sakargiftir höfðu á fjölskyldur fjórmenninganna sem sátu inni í Síðumúlafangelsi frá janúar 1976 fram á sumar sama ár - og fengu aldrei að fara út úr klefum sínum, sem sé, vel að merkja, voru í harðari einangrun en fjöldamorðingjar í Bandaríkjunum sæta á dauðadeildinni í álfunni vestra, eins og Einar bendir á í viðtalinu, sem er eins og áður segir einstaklega persónulegt og áhrifamikið.
Mannamál eru frumsýnd öll fimmtudagskvöld klukkan 20:30.