Var rétt að setja reiti í helgarsölu?

Kristján Möller Samfylkingunni hefur lagt fram fyrirspurn til Bjarna Benediktssonar vegna sölunnar á Reitum. Kristján spyr meðal annars hver markmiðin með sölunni á eignarhlut ríkissjóðs í Reitum fasteignafélagi hf. voru önnur en að fá sem hagstæðast verð.

Kristján vill vita hverjir voru ráðgjafar ríkisins við söluna og hvað fengu þeir langan frest til undirbún­ings og hvort sölufyrirkomulagið í samræmi við ráðgjöfina. Þá vill Kristján fá að vita hverjir keyptu. 

Kristján spyr einnig hvort ráðherrann telji að stutt söluferli sem þetta, yfir helgi þegar markaðir eru lokaðir, sé hag­fellt ríkissjóði þar sem bréfin voru auglýst eftir lokun markaða 19. ágúst sl. og tilboðs­frestur rann út kl. 8:30 mánudaginn 22. ágúst.

Spurningar Kristjáns eru margar, en þeirra er hver sé stefna ráðherra í því að veita almenningi kost á að eignast hlutabréf í eigu ríkis­ins og hvort salan á Reitum sé í samræmi við stefnu hans.

Bjarni mun svara skriflega.