Var reiður í vinnunni

\"Það er ekki eðlilegt að vera reiður í vinnunni\", segir Róbert Marshall, þingmaður Bjartrar Framtíðar sem hefur ákveðið að hætta á Alþingi. Róbert er í viðtali á Hringbraut kl.21 í kvöld. Hann segir lélegt fylgi flokks síns, um 2,5%, ekkert hafa með hans ákvörðun að gera og hann trúir því að flokkurinn nái 8 prósentum fyrir næstu kosningar. Björt framtíð sé staðráðin í að bjóða fram aftur, ekkert sé í spilunum um að sameinast öðrum flokkum. Róbert segist trúa á sjö ára reglu, það er, að lifa lífi sínu í sjö ára lotum og skipta um starfsvettvang þannig reglurlega. Hann segir gaman að starfa á Alþingi en þar séu þó stjórnmálamenn sem telji menn óvini sína séu menn þeim ekki sammála. Hann segir sitt helsta baráttumál vera náttúruvernd og fagnar því að fjármálaráðherra hafi lýst þeirri sko´ðun sinni að rafmagnslínur ætti ekki að leggja yfir hálendi Íslands.

Settist á þing uppúr Hruninu

Róbert situr nú annað kjörtímabil sitt, hið fyrra var fyrir Suðurkjördæmi og Samfylkinguna, þó utan flokka hluta tímabilsins. Nú er hann þingmaður fyrir Reykjavík Suður og Bjarta framtíð og hefur verið það í tvö ár. Róbert var varaþingmaður Samfylkingarinnar áður og hóf formlega stjórnmálaferil sinn árið 2006, að eigin sögn. Rókebrt settist fyrst á þing árið 2009, rétt eftir hrunið.