Var nauðgað af þjóðþekktum manni!

Ósk Gunnlaugsdóttir hefur glímt við áfallastreituröskun frá því að henni var nauðgað, þegar hún var sautján ára, af þjóðþekktum manni. Hún kveðst í samtali við vefmiðilinn Stundina að hún hafi upplifað létti þegar hún sagði frá ofbeldinu á Beauty tips. 


Ósk segir að maðurinn sem nauðgaði henni sé landsþekktur og komi reglulega fram í fjölmiðlum. Til þess að lágmarka hættuna á því að heyra rödd hans hlustar hún ekki mikið á útvarp. Hún greinir frá því á stundin.is að fyrir tveimur árum hafi hún verið að keyra og heyrði þá jólalag sem hún hafði ekki heyrt áður. Þegar laginu lauk hafi flytjandinn verið kynntur til sögunnar og þá hafi það verið hann. „Ég þurfti að nauðhemla úti í kanti á Sæbrautinni og æla,“ segir Ósk. Líkamleg viðbrögð voru svo sterk. „Þetta var eins og að fá spark í magann og því fylgdi gífurleg vanlíðan, flökurleiki og kvíðakast í kjölfarið.“


Ósk er ein þeirra kvenna sem opinberaði reynslu sína í lokuðu samfélagi Beauty tips á Facebook. Fjölmargar konur hafa gert slíkt hið sama, dögum saman hafa frásagnir streymt inn á vefinn undir merkjunum #þöggun og #konurtala. Byltingin hófst eftir að Guðrún Helga Guðbjartsdóttir birti færslu þar sem hún spurði hvort einhver hefði „lent í Sveini Andra“. Færslan var umdeild en þegar hún var fjarlægð gerðu konur uppreisn gegn þöggun um kynferðis­ofbeldi.


Ósk hefur aldrei kært málið til lögreglu og telur líklegt að hún muni ekki gera það. „Það eina sem myndi koma út úr því er að það gæti hjálpað í öðrum málum gegn sama manni. Mitt er fyrnt,“ útskýrir Ósk.


Nánar á stundin.is.