Var löggan eystra í hamingjuvímu?

\"Lögreglan fyrir austan virðist vera í slíkri hamingjuvímu yfir þessum mikla fíkniefnafundi að hún hefur gert hver mistökin á fætur öðrum,\" skrifar lögmaðurinn Sveinn Andri Sveinsson á fésbókarsíðu sína um stóra dópmálið í Norrænu.

Hollenskt par hefur verið til rannsóknar vegna málsins, en um 80 kíló af efnum fundust í húsbíl þess við komuna til Seyðisfjarðar á dögunum, falið í niðursuðudósum, varadekki og fleiri hlutum í bílnum.

Sveinn Andri er ekki par hrifinn af rannsókn málsins: \"Það er auglóst að hollenska parið er ekki eigendur efnanna, heldur eiga þau sér vitorðsmenn á Íslandi. Lögreglan á auðvitað ekki að upplýsa fjölmiðla um það á upphagsstigum málsins hvernig það bar að að efnin fundust, né heldur hvernig þeim var komið fyrir,\" skrifar Sveinn Andri og segir á ferðinni upplýsingar sem ekki megi berast hugsanlegum vitorðsmönnum.

\"Auðvitað átti að senda rannsóknarteymi frá LRH austur og láta þá taka yfir málið strax,\" skrifar lögmaðurinn, reyndur vel af málum af þessu tagi: \"Hvers vegna er lögreglan með rannsakendur með áratugareynslu af fíkniefnamálum á sínum snærum ef þeir eru ekki látnir stýra rannsókn eins stærsta fíkniefnamáls sögunnar,\" spyr hann á fésbók sinni.