Var katrín með innherjaupplýsingar?

Stjórnvöld voru að skoða hvaða afleiðingar gjaldþrot WOW hefði fyrir þjóðarbúið. „Niðurstöðurnar voru að gjaldþrot félagsins gæti leitt til að landsframleiðsla drægist saman um tæp þrjú prósent og gengi krónunnar gæti veikst um allt að 13 prósent á næsta ári. Til samanburðar gerði spá Hagstofunnar og Seðlabankans ráð fyrir 2,7 prósenta hagvexti og að gengi krónunnar héldist stöðugt. Fram kom að fall WOW gæti orðið til þess að útflutningur drægist saman um tíu prósent, verðbólga hækkaði um þrjú prósent – færi hátt í sex prósent – og að um 1.400 manns bættust á atvinnuleysisskrá. Þetta væri grafalvarleg staða,“ segir í leiðara Fréttablaðsins í dag þar sem Kristín Þorsteinsdóttir ritstjóri fjalla um kaup Icelandair á WOW.

Kristín segir að mörgum spurningum sé ósvarað um atburðarásina og segir að svo virðist sem forsætisráðherra hafi haft upplýsingar sem komu fjárfestum á óvart. Hún veltir því fyrir sér hvort innherjaupplýsingar um málið hafi verið á borði fólks sem var ekki skráð sem innherjar:

Nánar á

http://eyjan.dv.is/eyjan/2018/11/10/var-katrin-med-innherjaupplysingar/