Kona sem hringdi í neyðarlínuna á mánudag blöskraði viðbrögð lögreglunnar við hjálparbeiðni sinni.
Sólveig Johnsen segist hafa verið að ganga Barónsstíg ásamt unnustu sinni í fyrrakvöld þegar þær urðu varar við miðaldra karlmann sem sat á gangstéttinni.
Í fyrstu taldi hún að hann hafi verið að hvíla sig eftir langt skemmtanahald en áhyggjur vöknuðu þegar hún gerði sér grein fyrir því að hann væri nær meðvitundarlaus.
Í kjölfarið hringdi Sólveig í neyðarlínuna þar sem hún lýsti aðstæðum og sagðist vera óviss með það hvort maðurinn væri ofurölvi eða glímdi við heilbrigðisvanda.
Þá var hún send áfram á lögreglustöð þar sem hún greindi lögregluþjóni á vakt frá aðstæðum.
Bendi til þess að lögregla bregðist við með ólíkum hætti
Í færslu á Facebook þar sem hún greinir frá reynslunni segir Sólveig að sá hafi gert lítið úr áhyggjum hennar. Ummælin sem fylgdu í kjölfarið hafi hins vegar komið henni í opna skjöldu:
„Sýnist þér hann vera skattgreiðandi?“
Sólveig var þá orðlaus og í nokkru áfalli en hunsaði að hennar sögn ummælin og byrjaði að lýsa manninum sem sat ælandi á gangstéttinni.
Að endingu mættu þrír lögregluþjónar á vettvang og athuguðu með líðan mannsins en Sólveig segir að orð lögregluþjónsins hafi ollið sér miklu hugarangri.
„Var hann þarna að meina „skattgreiðandi“ í þeirri merkingu að hann væri ekki heimilislaus eða Íslendingur? Hvort sem er bendir það til þess að lögreglan muni bregðast með ólíkum hætti við hjálparbeiðnum eftir því hver óskar eftir aðstoðinni. Hefðu þau ekki sent neinn til að athuga með hann ef hann væri heimilislaus eða ekki Íslendingur?“