„Var hún að koma upp um Stellu Blómkvist?“

Háværar kenningar eru á lofti um að Heiða Reed, aðalleikkonan í þáttunum Stella Blómkvist, hafi óafvitandi ljóstrað upp hver höfundurinn er í raun og veru. Stella Blómkvist er höfundarnafn óþekkts íslensks rithöfundar. Kenningarnar eru mjög margar og mörg nöfn hafa verið nefnd, þar á meðal Davíð Oddsson, Yrsa Þöll Gylfadóttir, Óskar Magnússon og fleiri.

Heiða ræddi um Stellu í viðtali við Fréttablaðið í dag, þar segir hún:

„Ég held að það væri bara geðveikt óþægilegt að vita hver þetta er og held ég vilji síður vita það núna en áður. Kannski þekki ég hann. Kannski hef ég hitt hann. En ég held að þetta sé hann,“ sagði Heiða. Veðjar hún á að karlmaður leynist að baki Stellu. „En ég veit að nokkrir einstaklingar sem koma að þáttunum vita þetta og þeir segja ekki neitt. Þeir fara með þetta í gröfina held ég.“

Svo segir hún:

„Ég held að ég hafi heyrt að höfundurinn sjálfur sé ekki hrifinn af því að Stella væri að reykja.“

Þessi setning hefur kveikt í netverjum, en það er einn rithöfundur sem er þekktur fyrir að vera mjög á móti reykingum, en það er Þorgrímur Þráinsson.

„Var hún að koma upp um Stellu Blómkvist? Mér dettur bara einn í hug,“ segir Einar nokkur á Twitter.

Einn stökk svo fram og sagði að þetta væri gömul kenning.

Rithöfundurinn Stefán Máni hafnar þessu og segist vita hver Stella er: „Ég veit hver höfundurinn er. Mjög óspennandi staðreynd.“