Var hótað lagasetningu á fundi í gær

Þórunn Sveinbjarnardóttir, formaður BHM, segir að samninganefnd BHM hafi setið undir hótunum um lagasetningu á samningafundi í gærkvöldi sem var slitið skömmu fyrir klukkan tíu.


Í Morgunblaðinu í dag segir að hún hafi verið allt annað en sátt eftir fundinn.


Eins og fram hefur komið í fyrri fréttum Hringbrautar í dag er harla líklegt að sett verði lögbann á verkfall BHM í dag. Þórunn segir við blaðið að ríkið hafi 15 sinnum sett lög á verkfallsaðgerðir í gegnum söguna, þar af þrisvar á þessu ári. Því óttist hún eðlilega að ríkisstjórnin setji lögbann á verkfallið.


„Auðvitað óttumst við það. En ég segi það sama og ég hef áður sagt, það væri versta hugsanlega niðurstaðan,“ sagði Þórunn í samtali við Morgunblaðið. Viðræður BHM og ríkis hófust í desember og núna, hálfu ár síðar, er enn himin og haf á milli og því var viðræðum slitið af ríkissáttasemjara og enginn fundur verið boðaður.


„Við þurfum að velta því mjög alvarlega fyrir okkur hvort það séu einhverjar líkur á að samningar geti náðst eftir níu vikna verkfall,“ sagði Bjarni Benediktsson fjármálaráð-herra í gærkvöldi í viðtali við Morgunblaðið þegar hann var spurður hvort sett yrðu lög á kjaradeilu BHM við ríkið. Eins hefur Kristján Þór Júlíusson, heilbrigðisráðherra Sjálfstæðisflokksins, nýverið sagt opinberlega að hann útilokaði ekki að setja lög á verkfallið.