Hótað að „eitthvað kæmi fyrir hana“

Stormy Daniels sem segist hafa átt í ástarsambandi við Trump fyrir rúmum áratug segist hafa verið hótað því að eitthvað kæmi fyrir hana ef hún segði frá sambandinu í fjölmiðlum. Daniels, klámmyndaleikkonan fyrrverandi, sem réttu nafni heitir Stephanie Clifford, lýsti hótuninni í viðtal í sjónvarpsþættinum 60 Minutes sem sýndur var á CBS sjónvarpsstöðinni í gærkvöld.

Hún segist hafa verið á bílaplani í Las Vegas og verið að losa dóttur sína úr bílstól í aftursætinu þegar maður vatt sér að henni og sagði: „Láttu Trump í friði. Hættu við viðtalið,\" Síðan hafi hann beygt sig til að líta á dótturina og sagt: „Þetta er fallegt lítil stúlka. Það væri synd ef eitthvað kæmi fyrir mömmu hennar.“

Hún segir að hún hafi verið svo skálfandi í höndunum eftir þetta að hún hafi óttast að missa barnið á leið inn í ræktina.

Um þetta leyti hafði Daniels samþykkt að segja tímaritinu \"Touch\" söguna af sambandi þeirra Trumps og fá greitt fyrir það 15 þúsund dali. Samkvæmt heimildum 60 Minutes var tímaritinu hótað málssókn ef það birti viðtalið. Það birtist ekki í tímaritinu og Daniels fékk heldur aldrei greitt.

Viðtalið við Stormy Daniels í 60 Minutes.